Sigga Maja

boooring...

07.01.2008 11:53:03 / smess

Frí...

ég ætla að taka mér frí í óákveðinn tíma vegna óviðráðanlegra aðstæðna, þangað til

Bless Bless


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 11:51:37 / smess

OK OK people slaka!!!

það er nú algjör óþarfi að vera með læti....

en það er bara ekkert að frétta, þess vegna nennir maður ekkert að tjá sig neitt frekar...
en jújú það er kominn desember og jólin eru alveg að koma, ég er búin að setja upp seríur og jólagardínur og svona, svo var ég líka búin að baka fullt, en það er búið að borða það allt þannig að maður verur að baka meira, kannski á helginni þar sem að ég verð í fríi;)

annars ætlaði ég að gera tilraun númer milljón til að komast vestur á helginni, alltaf eitthvað sem kemur uppá, ég bara verð að komast til að sækja dót í íbúðina mína, t.d. jólagjöfina fyrir mömmu og pabba, það er nú líka nauðsynlegt að komast í sveitina að slaka á;) (Og já Fjóla ég er að tala um alvöru sveit, svona með kindum og svona ;) ) þannig að ég bið ykkur öll að krossa fingur og vona að veðrið hleypi mér heim....
En svona að öðru... þá er ég búin að þræða allar búðir á höfuðborgarsvæðinu og ég er bara ekki að finna neitt í jólagjöf fyrir fólk... og hvað á ég að gefa Hödda, ég er alveg tóm... Fjóla hvað ætlar þú að gefa Eisa;)

En hei mamma var hjá spákonu og hún sagði henni að ég ætti eftir að eiga heima í útlöndum, það hljómar bara alveg ágætlega held ég, hún sá danska fánann og gott veður, hvað sem það þýðir;) sko veðrið ;) og hún sagði henni líka að hún ætti eftir að eiga 13 barnabörn og að eitt væri væntanlegt á næsta ári.... sko Margrét er ekki að fara að eiga barn á næsta ári og Rakel segist ekki ætla að eiga fleiri svo að það er þá bara ég eða Ágústa;) hver veit hvað gerist...
en þær eru nú ótrúlegar þessar spákonur maður veit ekki hverju maður á að trúa.. en ég væri alveg til í að prófa, ef þið vitið um einhverja góða endilega látið mig vita;)

en ég ætla að ljúka þessu á hversu sorglegt slysið í Keflavík á helginni var, þetta er alveg hræðilegt að fólk geti bara keyrt í burtu, ég fór til Keflavíkur á mánudaginn og keyrði upp þessa götu og það voru svo mörg kerti á gangstéttinni að maður fékk gæsahúð....

en þetta dugar í bili vona ég, annars bara haldið þið fyrir nefið ef þetta er eitthvað illa lyktandi;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 15:22:26 / smess

Nóvember....

okok það er víst kominn nóvember... og svo kemur bara desember og þá eru víst jólin;)
annars er maður ekkert búin að vera að gera sossem... jújú kannski..

sko á síðustu helgi þá var ég alveg á milljón að baka smákökur og við gerðum hvorki meira eða minna en 7 tegundir;) svaka stuð.... aldrei bakað svona mikið.... í einu allavegana.
svo fór ég í mat til Júlla og Jessicu í alveg geggjað læri (sko lambalæri), svo dró ég Jessicu með mér í köku partý til Guðríðar og þar var verið í singstar og svo party´o´co brjálað stuð;) við héldum að við værum í einhverjum minni hluta afþví að Gúgú talaði alltaf um háskólapartý en viti menn við vitleysingjarnir vorum bara miklu fleiri heldur en þessir sem fúkkalyktin var af ;) sem betur fer... annars hefði ég kannski þurft að senda fötin mín í hreinsun (en þið vitið nottla að þetta er bara öfundsýkin sem er að skrifa en ekki ég ;) )

annars er ég alveg að verða geggjuð mig langar svo að föndra og skreyta og klippa og líma og sauma og prjóna og og og ...... þetta er of mikið ég veit ekki hvað ég á að byrja!!!! AAAAHHHHH!!!!  Ef einhver vill memm bara vera í bandi.

Og Hei ef einhverjum eða einhver veit um einhvern sem vantar vinnu þá vantar fólk í bakaríið hjá okkur, skemmtieg vinna með skemmtilegu fólki;) (ekki sakar að geta horft á eftir Jóa Fel annars lagið;)

ég held að ég sé í einhverri svona spennings vímu.....
og til að enda þetta nokkrir snilldar frasar;)

......WE ALL GO A LITTLE MAD SOMETIMES.......

......O REALLY ALICIA, AS IF, THAT´S ALL I´M SAYING, AS IF.......

.......AAAHH DON´T HIT ME WITH THE PHONE BITCH......

......MY MOM AND DAD ARE GONNA BE SO MAD AT ME......


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 22:12:39 / smess

karlmenn.... defenetely frá annarri plánetu...

við ætlum ekkert að commenta neitt meira á það en að þeir tala allavegana annað tungumál en ég.....

en annars er ekkert að frétta.... við erum bara alltaf að vinna eins og brjálæðingar og hitta fleira frægt fólk og svona... geggjað stuð;)
maður hefur ekki orku í að gera neitt annað en að fara beint að sofa eftir matinn... ein og ein sturta sleppur í gegn áður en svefninn tekur yfir ;) þannig að það verður vonandi slett aðeins úr klaufunum á næstu helgi, þá er maður loks í fríi... voooobí8|

ég tek við hugmyndum og pöntunum um djamm alla þessa viku  eftir kl.19:00

ég er alveg tóm hef alveg ekkert að segja..... eða skrifa.....

tökum þá bara eitthvað gamalt og gott fyrir.....  :
fyrst þegar ég hitti/sá:

Fjólu þá kom hún með látum inní herbergið mitt á MA vistinni fyrstu vikuna og tilkynnti að hún héti nú Fjóla og væri sko í herbergi 223 ef fólk vildi nú kíkja í heimsókn og kynnast henni betur:$

Snævar þá stóðu hann og Jón Ingi í hurðinni á herberginu sínu á ganginum þar sem allir þurftu að ganga fram hjá og létu eins og þeir væru geggjað svalir (létu N.B.) þeir sögðu svona eftir á að það hefði verið til að kynnast fólki, en mér fannst það nú meira svona creepy...8)

Jón Inga (Sveinbjörnsson) þá labbaði ég að honum og kynnti mig (Svala roomí hafði gefið mér MSN-ið hans og sagði að hann væri geggjað skemmtilegur, og við höfðum talað saman á MSN í einhverja daga) en neinei hann bara vissi ekkert hver ég var, þannig að ég mátti segja honum að þetta hefði jú verið ég sem var að kynna mig fyrir honum rétt áðan!!

Guðný þá sat hún voða róleg í herberginu sínu sem Fjóla var búin að fylla af fólki;)

Jæja þetta er nóg af upprifjunum í bili en þær eru margar og góðar;)
góða nótt elskurnar mínar og ég vona að ég fari að læra þetta blessaða tungumál:S


» 8 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 22:48:36 / smess

Jói Fel... ;)

jæja jæja

nú er fra ýmsu að segja.. eða skrifa... ég skrapp vestur að sækja föt og svona dót og er búin að koma mér fyrir hjá gömlu svona í bili, hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér... eða eitthvað.

en í gær þá byrjaði ég að vinna í bakaríi Jóa Fel á Kleppsvegi og það er alveg geggjað, fyrsta daginn afgreiddi ég meðal annars Þorstein J, Jón Ólafs og Sverri Bergmann;) og nottla Stellu (x-Snævars)hún var sú eina sem ég þekkti fyrir utan fræga fólkið... hún er nottla fræg en kannski ekki eins oft í séð og heyrt og hinir;)

en toppurinn er nottla að sjá og umgangast Jóa Fel alla daga.... maðurinn er nottla BARA FINE... yummie...;)

Harðu ég skellti mér enn einu sinni í bíó á....mánudaginn...held ég, en allavegana fórum við Guðríður á Stardust... og hún er mjög góð, svona rómantísk ævintýra mynd, fær alveg 5 stnjörnur frá mér;) ( og nei n-ið er ekki innsláttar villa) og næst held ég að mig langi að sjá Halloween, kannski bara um helgina ef einhver vill koma með mér;) ef einhver þorir...

en þetta er fínt, ég er farin að sofa, þarf að vakna snemma til að greiða mér og svona fyrir Jóa Fel;)

góða nótt heimur 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 14:49:24 / smess

hei hó

góðann daginn góðir hálsar;)

harðu ég fór í bíó á laugardaginn á myndina Superbad... OMG snilld... ég lá í krampa allann tímann.... þetta er bara með fyndnustu myndum sem ég hef séð og ég ætla að kaupa hana við tækifæri;) gjörsamlega seinheppnir gaurar... ég mæli með að allir fari og sjái þessa mynd;)

svo í gær þá fór ég á hryllingsmyndina Vacancy... og ég var að deyja úr hræðslu, ýkt scary... og ég var bara að fara á límingunum, var með lokuð augun svona 1/3 af myndinni, en ég var bara nokkuð sátt við endirinn svona til að segja ekki of mikið, endilega kíkjið á hana ef þið eruð hryllingsmynda fans;)

En svona annars þá býr maður bara hjá mömmu og pabba í augnablikinu, svona fram á vor held ég, ég nenni ekki að flytja búslóðina aftur suður... en ég er svona að vinna í því að finna mér vinnu... allar hugmyndir velkomnar;)

untill later..
Smess;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 18:52:19 / smess

Stjörnuspá;)

þetta lýsir mér svo....

Meyja (23.ágúst - 23.september): þú ert einn leiðinlegasti maður í heimi, alltaf að kvarta, gagnrýna og skipta þér af fólki, en segir aldrei neitt sem gagnast öðrum. þú ert alltaf á hlaupum, þykist vera duglegur, en gerir aldrei neitt af viti, ekki frekar en stormur í tebolla. þú ert stressuð taugahrúga.

takk fyrir mig;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 14:34:14 / smess

Góðann daginn góðir hálsar;)

Betra seint en aldrei... við erum núna að spá hvort það eigi að vera að halda í þessa síðu eða fá sér nýja??? Stórt er spurt...

Akkúrat núna erum við stödd í Hfj. og vitum ekki hvað það verður lengi, kannski bara forever and ever ;)  (við erum auðvitað bara ég ;) )

Það er ömurlegt veður... HALLÓ... það er ennþá sumar er það ekki??

OK þetta er fínt í bili........Later my peepz ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.01.2007 17:18:10 / smess

nýtt upphaf ;)

hei hó

ég er búin að eyða öllu út og hef ákveðið að byrja uppá nýtt...

ég ætla að lappa aðeins uppá þessa síðu og svo skrifa ég eitthvað krassandi.....

kv.
Sigga Maja


» 0 hafa sagt sína skoðun


day´s since my new life began
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 734542 dögum
Leitarbox

Klukkan